Jæja góðan daginn lesendur góðir nær og fjær! Ég biðst
afsökunar á bloggleysi mínu undanfarna daga en vegna
óviðráðanlegra aðstæðna hef ég lítið getað komist í tæri við
netið. Jú, ástæðan er sú að stelpan er komin í Kórahverfið og
hafa flutningar og öllu því sem fylgir því að koma sér fyrir
haft forgang. Annars er ekkert svo sem mikið að frétta af manni,
en ég fór í skírnaveislu til dóttur hennar Steinu um daginn og
fékk prinsessan nafnið Apríl Emma. Auðvitað óska ég henni og
foreldrum til hamingju.
Enn styttist í jólin og minna en 2 vikur í aðfangadag…ég ákvað að
vera heldur snemma í jólainnkaupum þetta árið og er ekki frá því að
svona flestar gjafirnar eru búnar. Fór með Sandy um helgina og svei
mér þá, það mætti halda að aðfangadagur væri í þessari viku en ekki
eftir 2. Fólkið var svoleiðis með innkaupapokanna og allir að byrja
snemma í gjafainnkaupum….!
Svo til að koma sér í smá jólastemmingu fór vinnan á jólahlaðborð á
hotel Borg síðastliðinn fimmtudag….mjög góður matur og mæli
hiklaust með þeim stað!
En ég hef þetta ekki lengra að sinni og vona að þið hafið haft það
gott um helgina og eru endurnærð fyrir komandi
vinnuviku!
Dóra