Jaaá lítið að frétta héðan úr “sveitinni...” ef sveit mætti kalla, jú ég myndi samt fá leyfi fyrir því að segjast búa í nokkurskonar sveit því ég var að tala við Láru vinkonu um daginnsem er ein af þeim skvísum sem vinna hjá FL um veðrið. Það snjóaði svo mikið að maður gat varla greint bíla sem voru annaðhvort í þann mund að festa sig í bílastæðum fyrir utan húsin sín eða reyna komast áfram á 20-30 km hraða í hringtorgunum/vegunum hér í Kópavogi. Hún vildi lítið sem ekkert kannast við snjókomu þar sem hún vinnur þ.e rétt hjá 101 rvk og skildi ekkert í því af hverju ég væri að kvarta yfir þessu öllu saman því það sæist varla snjókorn út um gluggann hjá sér
Það er því augljóst að hér í sveitinni þarf maður að vera öllu vanur og vera tilbúin að moka af mikilli natni snjó sem hefur myndast í kringum bilinn sinn...! Sérstaklega síðustu daga, ég hef því lítið verið að keyra um borgina þar sem geimskipið einsog Frosti vill kalla hann sé ekki ferðafær sökum lélegs dekkjabúnaðar. Maður ætti kannski að íhuga vetrardekk svona von bráðar ef þessu fer ekki að linna.
En þrátt fyrir þetta veður létum við stelpurnar þetta ekki skemma mánudagskvöldið fyrir okkur á Kárastígnum. Lára G.eldaði þessa dýrindis súpu og er hún að sjálfsögðu meistarakokkur sem og fleira í náinni framtíð...
Takk kærlega fyrir mig Lára mín og alltaf gaman að koma í heimsókn og fá svona góðan mat hjá þér...vonandi eiga þær eftir að verða mun fleiri á komandi ÁRI...uhumm
Fyrsta skólavikan er hafin og sé ég fram á að þessi önn verði mjög vinnusöm... það eru mörg verkefni og ritgerðir framundan svo ekki láta það koma ykkur á óvart ef ég læt heyra lítið í mér...alltaf gott að láta vita með fyrirvara!
Jæja nóg í bili...