Jæja, kannski kominn smá tími á litla færslu. Ég er semsagt komin í sumarfrí og byrjuð að vinna í leikskóla....já mikið rétt með litlum krúttlegum krúttbombum. Þetta eru krakkar á aldrinum 3-4 ára og algjört æði...mjög gaman að vinna með þeim. Annars er lítið að frétta svona úr daglega lífinu. Við stelpurnar bíðum spenntar eftir að Elísa okkar komi litla bumbukrílinu í heiminn en hún er einmitt sett í dag...spurning hvort eitthvað gerist í kvöld...spennandi.
Síðan var Sigrún okkar að útskrifast sem stúdent og óska ég henni auðvitað til hamingju með þann árangur, auðvitað stóð hún sig eins og hetja og fékk hvorki meira né minna en þrenn verðlaun fyrir góðan árangur...
og vil jafnframt þakka fyrir mig...þetta var rosa fínar veigar og veitingar í veislunni.
Síðan styttist í afmæli þeirra Önnu og Róberts...það verður eitthvað rosalegt, Anna er búin að vera á fullu að skipuleggja og gera allt klárt svo að ég á von á heljarinnar partýi með öllu tilheyrandi...get ekki beðið!
Að lokum á hún sys mín afmæli þann 9.júní og mun hún halda upp á 25 árin auðvitað í góðra vina hópi J
En þetta er komið gott í bili...